Psalms 49

1Fyrir kvenraddir. Til söngstjórans. Kóraítasálmur. 2Heyrið þetta, allar þjóðir, hlustið á, allir heimsbúar, 3bæði lágir og háir, jafnt ríkir sem fátækir! 4Munnur minn talar speki, og ígrundun hjarta míns er hyggindi. 5Ég hneigi eyra mitt að spakmæli, ræð gátu mína við gígjuhljóm. 6Hví skyldi ég óttast á mæðudögunum, þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með illsku, 7þeir sem reiða sig á auðæfi sín og stæra sig af sínu mikla ríkidæmi. 8Enginn maður fær keypt bróður sinn lausan né greitt Guði lausnargjald fyrir hann. 9Lausnargjaldið fyrir líf þeirra mundi verða of hátt, svo að hann yrði að hætta við það að fullu, 10ætti hann að halda áfram að lifa ævinlega og líta ekki í gröfina. 11Nei, hann sér, að vitrir menn deyja, að fífl og fáráðlingar farast hver með öðrum og láta öðrum eftir auðæfi sín. 12Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu, bústaðir þeirra frá kyni til kyns, jafnvel þótt þeir hafi kennt lendur við nafn sitt. 13Maðurinn í allri sinni vegsemd stenst ekki, hann verður jafn skepnunum sem farast. 14Svo fer þeim sem eru þóttafullir, og þeim sem fylgja þeim og hafa þóknun á tali þeirra. [Sela] 15Þeir stíga niður til Heljar eins og sauðahjörð, dauðinn heldur þeim á beit, og hinir hreinskilnu drottna yfir þeim, þá er morgnar, og mynd þeirra eyðist, Hel verður bústaður þeirra. 16En mína sál mun Guð endurleysa, því að hann mun hrífa mig úr greipum Heljar. [Sela] 17Óttast þú ekki, þegar einhver verður ríkur, þegar dýrð húss hans verður mikil, 18því að hann tekur ekkert af því með sér, þegar hann deyr, auður hans fer ekki niður þangað á eftir honum. 19Hann telur sig sælan meðan hann lifir: ,,Menn lofa þig, af því að þér farnast vel.`` 20_ Hann verður þó að fara til kynslóðar feðra sinna, sem aldrei að eilífu sjá ljósið. [ (Psalms 49:21) Maðurinn í vegsemd, en hyggindalaus, verður jafn skepnunum sem farast. ]
Copyright information for Icelandic